Viðbröð við eldgosi almennt

Úr Þekkingargátt Safnaráðs
Útgáfa frá 21. maí 2024 kl. 10:26 eftir Klara Þórhallsdóttir (spjall | framlög) Útgáfa frá 21. maí 2024 kl. 10:26 eftir Klara Þórhallsdóttir (spjall | framlög)

Forvarnir vegna eldgoss á Reykjanesskaga

Hvaða áhrif hefur þetta á safnkostinn?

Ein af afleiðingum eldgossins á Reykjanesskaga er loftmengun af völdum brennisteinstvíoxíð (SO2). Séu byggingar ekki með loftræstikerfi með kolasíum á gasið greiða leið inn og getur valdið skaða, t.a.m. á safnkosti. Samkvæmt upplýsingum frá sérfræðingum á Umhverfisstofnun má gera ráð fyrir að gildi innanhúss séu þau sömu og utanhúss nema gripið sé til sérstakra ráðstafana. Hægt er að skoða staðbundin gildi á www.loftgaedi.is

Hækkuð gildi SO2 verða til þess að gripirnir hrörna hraðar en ella. SO2 veldur oxunaráhrifum á málma sem leiðir til tæringar þeirra. Gasið getur einnig breyst í brennisteinssýru (H2SO4) í röku lofti og sýran hefur neikvæð áhrif á lífræn efni.