Leiðbeiningar um skordýraeftirlit í safnkosti
Fræðslupistlar safnaráðs – 1/2020
Nartað í menningararfinn: skordýr í safnkosti
Ýmislegt ógnar öryggi safngripa og annarra menningarminja, og er eitt þeirra skordýr. Þau geta unnið mikinn skaða á fremur stuttum tíma og er því mikilvægt að fylgjast vel með allri skordýraumferð í geymslum og á sýningum safna.
Algengustu skordýrin sem finnast hérlendis í safneignum eru um sextán talsins, og eru ákveðnar bjöllu- og mölflugutegundir tíðastar. Að auki eru svo auðþekkjanlegri skordýr eins og húsfluga og silfurskotta.
Hér eru teknar saman helstu upplýsingar[1] um þessa óvelkomnu gesti, að hverju þeir laðast helst og hvaða ráðum má beita til þess að minnka hættuna á skordýraskaða.
Algengustu skaðvaldarnir
Bjöllur
Gærubjöllur: hamgæra, búrgæra, feldgæra
Lirfurnar sjást sjaldan enda eru þær ljósfælnar, éta sig inn í safngripi og fela sig þar. Fullorðin dýr
sækja í ljós og finnast því gjarnan í gluggakistum og ljósakrónum.
Skaðar: textíl, leður, skinn, málverk, náttúrugripi.
Títlubjöllur: veggjatítla, húsþjófur, brauðtítla, hveitibjalla
Veggjatítla getur fundist í byggingarvið húsa. Í gömlum timburhúsum má stundum finna afmarkaða staði þar sem veggjatítlur geta þrifist, t.d. þar sem húshitun nær ekki til: á háaloftum, í kjöllurum og útveggjum, eða þar sem vatnsleki hefur orðið.
Húsþjófur þrífst jafnt í upphituðum sem óupphituðum húsakynnum og þolir töluvert lægra hitastig en margar aðrar bjöllur.
Brauðtítla sækir í ljós.
Hveitibjalla þrífst best í góðum hita (kjörhiti 28°C).
Skaðar: pappír, við, leður, skinn, málverk, náttúrugripi
Húsvinur finnst í híbýlum þar sem mygla er til staðar.
Mölflugur
Mölfiðrildi: fatamölur og ullarmölur.
Lirfurnar skaða með viðstöðulausu áti sínu. Mölfiðrildi eru ljósfælin, halda sig í dimmum hornum, skápum eða geymslum og láta lítið fyrir sér fara.
Skaðar: textíl, leður, skinn, málverk, náttúrugripi.
Lítil fiðrildi: húsmotti og gestamotti.
Lifa jafnt í upphituðum sem lítt hituðum húsakynnum.
Skaðar: pappír, leður, skinn, málverk, náttúrugripi
Önnur algeng skordýr sem geta valdið skaða
Kakkalakkinn er ljósfælinn og er helst á ferð á nóttunni.
Skaðar: pappír, leður, skinn, náttúrugripi
.
Silfurskottur þrífast best við 25–30°C og 75–97% raka. Skotturnar eru sérlega skæðar í dimmum og rökum geymslum. Skaðar: pappír, textíl, málverk
Húsflugur vaxa hægt í köldu umhverfi, en 25-35oC er sá hiti sem þær þrífast best við. Lirfurnar lifa á margs konar úrgangi en fullorðnu flugurnar á sykri og fljótandi fæðu
Skaðar: pappír, málverk
Ryklýs geta verið hvimleiðar nái þær miklum fjölda. Tilvist þeirra bendir til þess að raki og mygla séu til staðar. Skaðar: pappír, textíl
Hver er hvar?
Mikilvægt er að greina dýrin þar sem þau valda ekki öll skaða. Þegar ummerki skordýra finnast er ráðlagt að byrja á því að skoða efni griparins sem þá auðveldar greiningu.
- ↑ Fyrir nákvæmari upplýsingar er vísað í Handbók um varðveislu safnkosts II (2018), Kafli IV: Lífrænir skaðvaldar, bls. 155-194.
