Leiðbeiningar um skordýraeftirlit í safnkosti

Úr Þekkingargátt Safnaráðs
Útgáfa frá 22. maí 2024 kl. 13:42 eftir Klara Þórhallsdóttir (spjall | framlög) Útgáfa frá 22. maí 2024 kl. 13:42 eftir Klara Þórhallsdóttir (spjall | framlög)

Fræðslupistlar safnaráðs – 1/2020

Nartað í menningararfinn: skordýr í safnkosti

Ýmislegt ógnar öryggi safngripa og annarra menningarminja, og er eitt þeirra skordýr. Þau geta unnið mikinn skaða á fremur stuttum tíma og er því mikilvægt að fylgjast vel með allri skordýraumferð í geymslum og á sýningum safna.

Algengustu skordýrin sem finnast hérlendis í safneignum eru um sextán talsins, og eru ákveðnar bjöllu- og mölflugutegundir tíðastar. Að auki eru svo auðþekkjanlegri skordýr eins og húsfluga og silfurskotta.

Hér eru teknar saman helstu upplýsingar[1] um þessa óvelkomnu gesti, að hverju þeir laðast helst og hvaða ráðum má beita til þess að minnka hættuna á skordýraskaða.

Algengustu skaðvaldarnir

Hamgæra, lirfa og fullorðið dýr
Hamgæra, lirfa og fullorðið dýr
Bjöllur

Gærubjöllur: hamgæra, búrgæra, feldgæra

Lirfurnar sjást sjaldan enda eru þær ljósfælnar, éta sig inn í safngripi og fela sig þar. Fullorðin dýr

sækja í ljós og finnast því gjarnan í gluggakistum og ljósakrónum.

Skaðar: textíl, leður, skinn, málverk, náttúrugripi.

Veggjatítla
Veggjatítla

Títlubjöllur: veggjatítla, húsþjófur, brauðtítla, hveitibjalla

Veggjatítla getur fundist í byggingarvið húsa. Í gömlum timburhúsum má stundum finna afmarkaða staði þar sem veggjatítlur geta þrifist, t.d. þar sem húshitun nær ekki til: á háaloftum, í kjöllurum og útveggjum, eða þar sem vatnsleki hefur orðið.

Húsþjófur þrífst jafnt í upphituðum sem óupphituðum húsakynnum og þolir töluvert lægra hitastig en margar aðrar bjöllur.

Göt í málverki eftir veggjatítlu
Göt í málverki eftir veggjatítlu

Brauðtítla sækir í ljós.

Hveitibjalla þrífst best í góðum hita (kjörhiti 28°C).

Skaðar: pappír, við, leður, skinn, málverk, náttúrugripi

Húsvinur finnst í híbýlum þar sem mygla er til staðar.

Mölflugur
Fatamölur
Fatamölur

Mölfiðrildi: fatamölur og ullarmölur.

Lirfurnar skaða með viðstöðulausu áti sínu. Mölfiðrildi eru ljósfælin, halda sig í dimmum hornum, skápum eða geymslum og láta lítið fyrir sér fara.

Skaðar: textíl, leður, skinn, málverk, náttúrugripi.

Gestamotti
Gestamotti

Lítil fiðrildi: húsmotti og gestamotti.

Lifa jafnt í upphituðum sem lítt hituðum húsakynnum.

Skaðar: pappír, leður, skinn, málverk, náttúrugripi.

Göt í fóðri veggteppis, líklega eftir mölfiðrildi
Göt í fóðri veggteppis, líklega eftir mölfiðrildi
  1. Fyrir nákvæmari upplýsingar er vísað í Handbók um varðveislu safnkosts II (2018), Kafli IV: Lífrænir skaðvaldar, bls. 155-194.