„Leiðbeiningar um skordýraeftirlit í safnkosti“: Munur á milli breytinga
Ekkert breytingarágrip |
|||
| Lína 40: | Lína 40: | ||
=== '''Mölflugur''' === | === '''Mölflugur''' === | ||
[[Mynd:Fatamölur.png|alt=Fatamölur|thumb|151x151dp|Fatamölur]][[Mynd:Gestamotti .png|alt=Gestamotti |thumb| | [[Mynd:Fatamölur.png|alt=Fatamölur|thumb|151x151dp|Fatamölur]][[Mynd:Gestamotti .png|alt=Gestamotti |thumb|152x152px|Gestamotti ]] | ||
==== '''Mölfiðrildi: fatamölur og ullarmölur'''. ==== | ==== '''Mölfiðrildi: fatamölur og ullarmölur'''. ==== | ||
Lirfurnar skaða með viðstöðulausu áti sínu. Mölfiðrildi eru ljósfælin, halda sig í dimmum hornum, skápum eða geymslum og láta lítið fyrir sér fara. | Lirfurnar skaða með viðstöðulausu áti sínu. Mölfiðrildi eru ljósfælin, halda sig í dimmum hornum, skápum eða geymslum og láta lítið fyrir sér fara. ''Skaðar:'' ''textíl, leður, skinn, málverk, náttúrugripi.'' | ||
[[Mynd:Göt .png|vinstri|thumb|Göt í fóðri veggteppis, líklega eftir mölfiðrildi|202x202px]] | |||
<blockquote> | |||
'''Lítil fiðrildi: húsmotti og gestamotti'''. | '''Lítil fiðrildi: húsmotti og gestamotti'''. | ||
| Lína 59: | Lína 60: | ||
<blockquote>.</blockquote> | <blockquote>.</blockquote><blockquote></blockquote> | ||
=== '''Önnur algeng skordýr sem geta valdið skaða''' === | === '''Önnur algeng skordýr sem geta valdið skaða''' === | ||
| Lína 70: | Lína 71: | ||
[[Mynd:Ryklús.png|thumb|120x120px|Ryklús]] | [[Mynd:Ryklús.png|thumb|120x120px|Ryklús]] | ||
'''Húsflugur''' vaxa hægt í köldu umhverfi, en 25-35°C er sá hiti sem þær þrífast best við. | |||
Lirfurnar lifa á margs konar úrgangi en fullorðnu flugurnar á sykri og fljótandi fæðu | Lirfurnar lifa á margs konar úrgangi en fullorðnu flugurnar á sykri og fljótandi fæðu | ||
| Lína 82: | Lína 80: | ||
Skaðar: ''pappír, textíl.''<blockquote></blockquote> | Skaðar: ''pappír, textíl.''<blockquote></blockquote> | ||
<blockquote></blockquote> | |||
=== '''Hver er hvar?''' === | === '''Hver er hvar?''' === | ||
Útgáfa síðunnar 27. ágúst 2024 kl. 16:48
Fræðslupistlar safnaráðs – 1/2020
Nartað í menningararfinn: skordýr í safnkosti
Ýmislegt ógnar öryggi safngripa og annarra menningarminja, og er eitt þeirra skordýr. Þau geta unnið mikinn skaða á fremur stuttum tíma og er því mikilvægt að fylgjast vel með allri skordýraumferð í geymslum og á sýningum safna.
Algengustu skordýrin sem finnast hérlendis í safneignum eru um sextán talsins, og eru ákveðnar bjöllu- og mölflugutegundir tíðastar. Að auki eru svo auðþekkjanlegri skordýr eins og húsfluga og silfurskotta.
Hér eru teknar saman helstu upplýsingar[1] um þessa óvelkomnu gesti, að hverju þeir laðast helst og hvaða ráðum má beita til þess að minnka hættuna á skordýraskaða.
Algengustu skaðvaldarnir
Bjöllur
Gærubjöllur: hamgæra, búrgæra, feldgæra
Lirfurnar sjást sjaldan enda eru þær ljósfælnar, éta sig inn í safngripi og fela sig þar. Fullorðin dýr
sækja í ljós og finnast því gjarnan í gluggakistum og ljósakrónum.
Skaðar: textíl, leður, skinn, málverk, náttúrugripi.
Títlubjöllur: veggjatítla, húsþjófur, brauðtítla, hveitibjalla
Veggjatítla getur fundist í byggingarvið húsa. Í gömlum timburhúsum má stundum finna afmarkaða staði þar sem veggjatítlur geta þrifist, t.d. þar sem húshitun nær ekki til: á háaloftum, í kjöllurum og útveggjum, eða þar sem vatnsleki hefur orðið.
Húsþjófur þrífst jafnt í upphituðum sem óupphituðum húsakynnum og þolir töluvert lægra hitastig en margar aðrar bjöllur.
Brauðtítla sækir í ljós.
Hveitibjalla þrífst best í góðum hita (kjörhiti 28°C). Skaðar: pappír, við, leður, skinn, málverk, náttúrugripi
Húsvinur finnst í híbýlum þar sem mygla er til staðar.
Mölflugur
Mölfiðrildi: fatamölur og ullarmölur.
Lirfurnar skaða með viðstöðulausu áti sínu. Mölfiðrildi eru ljósfælin, halda sig í dimmum hornum, skápum eða geymslum og láta lítið fyrir sér fara. Skaðar: textíl, leður, skinn, málverk, náttúrugripi.
Lítil fiðrildi: húsmotti og gestamotti.Lifa jafnt í upphituðum sem lítt hituðum húsakynnum.
Skaðar: pappír, leður, skinn, málverk, náttúrugripi.
.
Önnur algeng skordýr sem geta valdið skaða
Kakkalakkinn er ljósfælinn og er helst á ferð á nóttunni. Skaðar: pappír, leður, skinn, náttúrugripi.
Silfurskottur þrífast best við 25–30°C og 75–97% raka.
Skotturnar eru sérlega skæðar í dimmum og rökum geymslum. Skaðar: pappír, textíl, málverk.
Húsflugur vaxa hægt í köldu umhverfi, en 25-35°C er sá hiti sem þær þrífast best við.
Lirfurnar lifa á margs konar úrgangi en fullorðnu flugurnar á sykri og fljótandi fæðu
Skaðar: pappír, málverk.
Ryklýs geta verið hvimleiðar nái þær miklum fjölda. Tilvist þeirra bendir til þess að raki og mygla séu til staðar.
Skaðar: pappír, textíl.
Hver er hvar?
Mikilvægt er að greina dýrin þar sem þau valda ekki öll skaða. Þegar ummerki skordýra finnast er ráðlagt að byrja á því að skoða efni griparins sem þá auðveldar greiningu.
- ↑ Fyrir nákvæmari upplýsingar er vísað í Handbók um varðveislu safnkosts II (2018), Kafli IV: Lífrænir skaðvaldar, bls. 155-194.
