„Forvarnir vegna eldgoss á Reykjanesskaga“: Munur á milli breytinga

Úr Þekkingargátt Safnaráðs
(Bjó til síðu með „Forvarnir vegna eldgoss á Reykjanesskaga“)
 
Ekkert breytingarágrip
 
(Ein millibreyting eftir einn annan notanda ekki sýnd)
Lína 1: Lína 1:
Forvarnir vegna eldgoss á Reykjanesskaga
== Forvarnir vegna eldgoss á Reykjanesskaga ==
 
=== '''Hvaða áhrif hefur þetta á safnkostinn?''' ===
Ein af afleiðingum eldgossins á Reykjanesskaga er loftmengun af völdum brennisteinstvíoxíð (SO2). Séu byggingar ekki með loftræstikerfi með kolasíum á gasið greiða leið inn og getur valdið skaða, t.a.m. á safnkosti. Samkvæmt upplýsingum frá sérfræðingum á Umhverfisstofnun má gera ráð fyrir að gildi innanhúss séu þau sömu og utanhúss nema gripið sé til sérstakra ráðstafana. Hægt er að skoða staðbundin gildi á [https://loftgaedi.is/?zoomLevel=7&lat=64.894972&lng=-18.675028 www.loftgaedi.is].
 
 
Hækkuð gildi SO2 verða til þess að gripirnir hrörna hraðar en ella. SO2 veldur oxunaráhrifum á málma sem leiðir til tæringar þeirra. Gasið getur einnig breyst í brennisteinssýru (H2SO4) í röku lofti og sýran hefur neikvæð áhrif á lífræn efni.
 
 
SO2 getur m.a. valdið skemmdum á:
 
* Öllum málmum, einkum þó á kopar og silfri
 
* Silfurútfellingar geta myndast á filmum, glerplötum og ljósmyndapappír.
 
* Málning og litir í vefnaði fölna.
 
* Leður missir styrk og sveiganleika. Verður brothætt og púðurkennt.
 
* Pappír gulnar og verður stökkur.
 
* Ull og silki missa styrk og teygjanleika.
 
* Bómull, lín, viskósi og nælon verða stökk og brothætt.
 
* Alabastur (og annar kalksteinn)

Nýjasta útgáfa síðan 29. ágúst 2024 kl. 13:36

Forvarnir vegna eldgoss á Reykjanesskaga[breyta | breyta frumkóða]

Hvaða áhrif hefur þetta á safnkostinn?[breyta | breyta frumkóða]

Ein af afleiðingum eldgossins á Reykjanesskaga er loftmengun af völdum brennisteinstvíoxíð (SO2). Séu byggingar ekki með loftræstikerfi með kolasíum á gasið greiða leið inn og getur valdið skaða, t.a.m. á safnkosti. Samkvæmt upplýsingum frá sérfræðingum á Umhverfisstofnun má gera ráð fyrir að gildi innanhúss séu þau sömu og utanhúss nema gripið sé til sérstakra ráðstafana. Hægt er að skoða staðbundin gildi á www.loftgaedi.is.


Hækkuð gildi SO2 verða til þess að gripirnir hrörna hraðar en ella. SO2 veldur oxunaráhrifum á málma sem leiðir til tæringar þeirra. Gasið getur einnig breyst í brennisteinssýru (H2SO4) í röku lofti og sýran hefur neikvæð áhrif á lífræn efni.


SO2 getur m.a. valdið skemmdum á:

  • Öllum málmum, einkum þó á kopar og silfri
  • Silfurútfellingar geta myndast á filmum, glerplötum og ljósmyndapappír.
  • Málning og litir í vefnaði fölna.
  • Leður missir styrk og sveiganleika. Verður brothætt og púðurkennt.
  • Pappír gulnar og verður stökkur.
  • Ull og silki missa styrk og teygjanleika.
  • Bómull, lín, viskósi og nælon verða stökk og brothætt.
  • Alabastur (og annar kalksteinn)