„Forvarnir vegna eldgoss á Reykjanesskaga“: Munur á milli breytinga
Ekkert breytingarágrip |
Ekkert breytingarágrip |
||
| Lína 10: | Lína 10: | ||
SO2 getur m.a. valdið skemmdum á: | SO2 getur m.a. valdið skemmdum á: | ||
* Öllum málmum, einkum þó á kopar og silfri | |||
* Silfurútfellingar geta myndast á filmum, glerplötum og ljósmyndapappír. | |||
* Málning og litir í vefnaði fölna. | |||
* Leður missir styrk og sveiganleika. Verður brothætt og púðurkennt. | |||
* Pappír gulnar og verður stökkur. | |||
* Ull og silki missa styrk og teygjanleika. | |||
* Bómull, lín, viskósi og nælon verða stökk og brothætt. | |||
* Alabastur (og annar kalksteinn) | |||
Nýjasta útgáfa síðan 29. ágúst 2024 kl. 13:36
Forvarnir vegna eldgoss á Reykjanesskaga[breyta | breyta frumkóða]
Hvaða áhrif hefur þetta á safnkostinn?[breyta | breyta frumkóða]
Ein af afleiðingum eldgossins á Reykjanesskaga er loftmengun af völdum brennisteinstvíoxíð (SO2). Séu byggingar ekki með loftræstikerfi með kolasíum á gasið greiða leið inn og getur valdið skaða, t.a.m. á safnkosti. Samkvæmt upplýsingum frá sérfræðingum á Umhverfisstofnun má gera ráð fyrir að gildi innanhúss séu þau sömu og utanhúss nema gripið sé til sérstakra ráðstafana. Hægt er að skoða staðbundin gildi á www.loftgaedi.is.
Hækkuð gildi SO2 verða til þess að gripirnir hrörna hraðar en ella. SO2 veldur oxunaráhrifum á málma sem leiðir til tæringar þeirra. Gasið getur einnig breyst í brennisteinssýru (H2SO4) í röku lofti og sýran hefur neikvæð áhrif á lífræn efni.
SO2 getur m.a. valdið skemmdum á:
- Öllum málmum, einkum þó á kopar og silfri
- Silfurútfellingar geta myndast á filmum, glerplötum og ljósmyndapappír.
- Málning og litir í vefnaði fölna.
- Leður missir styrk og sveiganleika. Verður brothætt og púðurkennt.
- Pappír gulnar og verður stökkur.
- Ull og silki missa styrk og teygjanleika.
- Bómull, lín, viskósi og nælon verða stökk og brothætt.
- Alabastur (og annar kalksteinn)