„Leiðbeiningar um skordýraeftirlit í safnkosti“: Munur á milli breytinga
Ekkert breytingarágrip |
|||
| Lína 12: | Lína 12: | ||
=== Algengustu skaðvaldarnir === | === Algengustu skaðvaldarnir === | ||
[[Mynd:Hamgæra.png|alt=Hamgæra, lirfa og fullorðið dýr|thumb|Hamgæra, lirfa og fullorðið dýr | [[Mynd:Hamgæra.png|alt=Hamgæra, lirfa og fullorðið dýr|thumb|202x202dp|Hamgæra, lirfa og fullorðið dýr]] | ||
====== '''Bjöllur''' ====== | ====== '''Bjöllur''' ====== | ||
===== '''Gærubjöllur: hamgæra, búrgæra, feldgæra''' ===== | |||
'''Gærubjöllur: hamgæra, búrgæra, feldgæra''' | Lirfurnar sjást sjaldan enda eru þær ljósfælnar, éta sig inn í safngripi og fela sig þar. Fullorðin dýr | ||
Lirfurnar sjást sjaldan enda eru þær ljósfælnar, éta sig inn í safngripi og fela sig þar. Fullorðin dýr | |||
sækja í ljós og finnast því gjarnan í gluggakistum og ljósakrónum. | sækja í ljós og finnast því gjarnan í gluggakistum og ljósakrónum. | ||
| Lína 25: | Lína 23: | ||
''Skaðar: textíl, leður, skinn, málverk, náttúrugripi.'' | ''Skaðar: textíl, leður, skinn, málverk, náttúrugripi.'' | ||
[[Mynd:Veggjatítla.png|alt=Veggjatítla|thumb|204x204px|Veggjatítla ]]'''Títlubjöllur: veggjatítla, húsþjófur, brauðtítla, hveitibjalla''' | [[Mynd:Veggjatítla.png|alt=Veggjatítla|thumb|204x204px|Veggjatítla ]] | ||
===== '''Títlubjöllur: veggjatítla, húsþjófur, brauðtítla, hveitibjalla''' ===== | |||
Veggjatítla getur fundist í byggingarvið húsa. Í gömlum timburhúsum má stundum finna afmarkaða staði þar sem veggjatítlur geta þrifist, t.d. þar sem húshitun nær ekki til: á háaloftum, í kjöllurum og útveggjum, eða þar sem vatnsleki hefur orðið. | Veggjatítla getur fundist í byggingarvið húsa. Í gömlum timburhúsum má stundum finna afmarkaða staði þar sem veggjatítlur geta þrifist, t.d. þar sem húshitun nær ekki til: á háaloftum, í kjöllurum og útveggjum, eða þar sem vatnsleki hefur orðið. | ||
'''Húsþjófur''' þrífst jafnt í upphituðum sem óupphituðum húsakynnum og þolir töluvert lægra hitastig en margar aðrar bjöllur.[[Mynd:Bakhlið málverks .png|alt=Göt í málverki eftir veggjatítlu|thumb|178x178px|Göt í málverki eftir veggjatítlu | '''Húsþjófur''' þrífst jafnt í upphituðum sem óupphituðum húsakynnum og þolir töluvert lægra hitastig en margar aðrar bjöllur.[[Mynd:Bakhlið málverks .png|alt=Göt í málverki eftir veggjatítlu|thumb|178x178px|Göt í málverki eftir veggjatítlu]]'''Brauðtítla''' sækir í ljós. | ||
''Skaðar: pappír, við, leður, skinn, málverk, náttúrugripi'' | '''Hveitibjalla''' þrífst best í góðum hita (kjörhiti 28°C). ''Skaðar: pappír, við, leður, skinn, málverk, náttúrugripi'' | ||
'''Húsvinur''' finnst í híbýlum þar sem mygla er til staðar. | '''Húsvinur''' finnst í híbýlum þar sem mygla er til staðar. | ||
=== Mölflugur === | === Mölflugur === | ||
Útgáfa síðunnar 27. ágúst 2024 kl. 16:07
Fræðslupistlar safnaráðs – 1/2020
Nartað í menningararfinn: skordýr í safnkosti
Ýmislegt ógnar öryggi safngripa og annarra menningarminja, og er eitt þeirra skordýr. Þau geta unnið mikinn skaða á fremur stuttum tíma og er því mikilvægt að fylgjast vel með allri skordýraumferð í geymslum og á sýningum safna.
Algengustu skordýrin sem finnast hérlendis í safneignum eru um sextán talsins, og eru ákveðnar bjöllu- og mölflugutegundir tíðastar. Að auki eru svo auðþekkjanlegri skordýr eins og húsfluga og silfurskotta.
Hér eru teknar saman helstu upplýsingar[1] um þessa óvelkomnu gesti, að hverju þeir laðast helst og hvaða ráðum má beita til þess að minnka hættuna á skordýraskaða.
Algengustu skaðvaldarnir
Bjöllur
Gærubjöllur: hamgæra, búrgæra, feldgæra
Lirfurnar sjást sjaldan enda eru þær ljósfælnar, éta sig inn í safngripi og fela sig þar. Fullorðin dýr
sækja í ljós og finnast því gjarnan í gluggakistum og ljósakrónum.
Skaðar: textíl, leður, skinn, málverk, náttúrugripi.
Títlubjöllur: veggjatítla, húsþjófur, brauðtítla, hveitibjalla
Veggjatítla getur fundist í byggingarvið húsa. Í gömlum timburhúsum má stundum finna afmarkaða staði þar sem veggjatítlur geta þrifist, t.d. þar sem húshitun nær ekki til: á háaloftum, í kjöllurum og útveggjum, eða þar sem vatnsleki hefur orðið.
Húsþjófur þrífst jafnt í upphituðum sem óupphituðum húsakynnum og þolir töluvert lægra hitastig en margar aðrar bjöllur.
Brauðtítla sækir í ljós.
Hveitibjalla þrífst best í góðum hita (kjörhiti 28°C). Skaðar: pappír, við, leður, skinn, málverk, náttúrugripi
Húsvinur finnst í híbýlum þar sem mygla er til staðar.
Mölflugur
Mölfiðrildi: fatamölur og ullarmölur.
Lirfurnar skaða með viðstöðulausu áti sínu. Mölfiðrildi eru ljósfælin, halda sig í dimmum hornum, skápum eða geymslum og láta lítið fyrir sér fara.
Skaðar: textíl, leður, skinn, málverk, náttúrugripi.
Lítil fiðrildi: húsmotti og gestamotti.
Lifa jafnt í upphituðum sem lítt hituðum húsakynnum.
Skaðar: pappír, leður, skinn, málverk, náttúrugripi
Önnur algeng skordýr sem geta valdið skaða
Kakkalakkinn er ljósfælinn og er helst á ferð á nóttunni.
Skaðar: pappír, leður, skinn, náttúrugripi
.
Silfurskottur þrífast best við 25–30°C og 75–97% raka. Skotturnar eru sérlega skæðar í dimmum og rökum geymslum. Skaðar: pappír, textíl, málverk
Húsflugur vaxa hægt í köldu umhverfi, en 25-35oC er sá hiti sem þær þrífast best við. Lirfurnar lifa á margs konar úrgangi en fullorðnu flugurnar á sykri og fljótandi fæðu
Skaðar: pappír, málverk
Ryklýs geta verið hvimleiðar nái þær miklum fjölda. Tilvist þeirra bendir til þess að raki og mygla séu til staðar. Skaðar: pappír, textíl
Hver er hvar?
Mikilvægt er að greina dýrin þar sem þau valda ekki öll skaða. Þegar ummerki skordýra finnast er ráðlagt að byrja á því að skoða efni griparins sem þá auðveldar greiningu.
- ↑ Fyrir nákvæmari upplýsingar er vísað í Handbók um varðveislu safnkosts II (2018), Kafli IV: Lífrænir skaðvaldar, bls. 155-194.
