„Leiðbeiningar um skordýraeftirlit í safnkosti“: Munur á milli breytinga
Ekkert breytingarágrip |
mEkkert breytingarágrip |
||
| Lína 34: | Lína 34: | ||
====== Mölflugur ====== | ====== Mölflugur ====== | ||
[[Mynd:Fatamölur.png|alt=Fatamölur|thumb|151x151dp|Fatamölur]] | [[Mynd:Fatamölur.png|alt=Fatamölur|thumb|151x151dp|Fatamölur]][[Mynd:Gestamotti .png|alt=Gestamotti |vinstri|thumb|181x181px|Gestamotti ]] | ||
'''Mölfiðrildi: fatamölur og ullarmölur'''. | '''Mölfiðrildi: fatamölur og ullarmölur'''. | ||
| Lína 40: | Lína 40: | ||
''Skaðar:'' ''textíl, leður, skinn, málverk, náttúrugripi.'' | ''Skaðar:'' ''textíl, leður, skinn, málverk, náttúrugripi.'' | ||
'''Lítil fiðrildi: húsmotti og gestamotti'''. | '''Lítil fiðrildi: húsmotti og gestamotti'''. | ||
Lifa jafnt í upphituðum sem lítt hituðum húsakynnum. | Lifa jafnt í upphituðum sem lítt hituðum húsakynnum.[[Mynd:Göt .png|alt=Göt í fóðri veggteppis, líklega eftir mölfiðrildi|thumb|125x125px|Göt í fóðri veggteppis, líklega eftir mölfiðrildi]]''Skaðar: pappír, leður, skinn, málverk, náttúrugripi''. | ||
=== '''Önnur algeng skordýr sem geta valdið skaða''' === | |||
[[Mynd:Húskakkalakki.png|vinstri|thumb|178x178dp|Húskakkalakki]] | |||
'''Kakkalakkinn''' er ljósfælinn og er helst á ferð á nóttunni. | |||
Skaðar: ''pappír, leður, skinn, náttúrugripi'' | |||
'''Silfurskottur''' þrífast best við 25–30°C og 75–97% raka. Skotturnar eru sérlega skæðar í dimmum og rökum geymslum. Skaðar: ''pappír, textíl, málverk'' | |||
[[Mynd:Silfurskotta.png|vinstri|thumb|173x173dp|Silfurskotta]] | |||
[[Mynd:Silfurskottuétinn pappír.jpg|miðja|thumb|261x261dp|Silfurskottuétinn pappír]] | |||
'''Húsflugur''' vaxa hægt í köldu umhverfi, en 25-35oC er sá hiti sem þær þrífast best við. Lirfurnar lifa á margs konar úrgangi en fullorðnu flugurnar á sykri og fljótandi fæðu | |||
Skaðar: ''pappír, málverk'' | |||
'''Ryklýs''' geta verið hvimleiðar nái þær miklum fjölda. Tilvist þeirra bendir til þess að raki og mygla séu til staðar. | |||
'' | Skaðar: ''pappír, textíl'' | ||
Útgáfa síðunnar 9. júlí 2024 kl. 14:14
Fræðslupistlar safnaráðs – 1/2020
Nartað í menningararfinn: skordýr í safnkosti
Ýmislegt ógnar öryggi safngripa og annarra menningarminja, og er eitt þeirra skordýr. Þau geta unnið mikinn skaða á fremur stuttum tíma og er því mikilvægt að fylgjast vel með allri skordýraumferð í geymslum og á sýningum safna.
Algengustu skordýrin sem finnast hérlendis í safneignum eru um sextán talsins, og eru ákveðnar bjöllu- og mölflugutegundir tíðastar. Að auki eru svo auðþekkjanlegri skordýr eins og húsfluga og silfurskotta.
Hér eru teknar saman helstu upplýsingar[1] um þessa óvelkomnu gesti, að hverju þeir laðast helst og hvaða ráðum má beita til þess að minnka hættuna á skordýraskaða.
Algengustu skaðvaldarnir
Bjöllur
Gærubjöllur: hamgæra, búrgæra, feldgæra
Lirfurnar sjást sjaldan enda eru þær ljósfælnar, éta sig inn í safngripi og fela sig þar. Fullorðin dýr
sækja í ljós og finnast því gjarnan í gluggakistum og ljósakrónum.
Skaðar: textíl, leður, skinn, málverk, náttúrugripi.
Títlubjöllur: veggjatítla, húsþjófur, brauðtítla, hveitibjalla
Veggjatítla getur fundist í byggingarvið húsa. Í gömlum timburhúsum má stundum finna afmarkaða staði þar sem veggjatítlur geta þrifist, t.d. þar sem húshitun nær ekki til: á háaloftum, í kjöllurum og útveggjum, eða þar sem vatnsleki hefur orðið.
Húsþjófur þrífst jafnt í upphituðum sem óupphituðum húsakynnum og þolir töluvert lægra hitastig en margar aðrar bjöllur.
Brauðtítla sækir í ljós.
Hveitibjalla þrífst best í góðum hita (kjörhiti 28°C).
Skaðar: pappír, við, leður, skinn, málverk, náttúrugripi
Húsvinur finnst í híbýlum þar sem mygla er til staðar.
Mölflugur
Mölfiðrildi: fatamölur og ullarmölur.
Lirfurnar skaða með viðstöðulausu áti sínu. Mölfiðrildi eru ljósfælin, halda sig í dimmum hornum, skápum eða geymslum og láta lítið fyrir sér fara.
Skaðar: textíl, leður, skinn, málverk, náttúrugripi.
Lítil fiðrildi: húsmotti og gestamotti.
Lifa jafnt í upphituðum sem lítt hituðum húsakynnum.
Skaðar: pappír, leður, skinn, málverk, náttúrugripi.
Önnur algeng skordýr sem geta valdið skaða
Kakkalakkinn er ljósfælinn og er helst á ferð á nóttunni.
Skaðar: pappír, leður, skinn, náttúrugripi
Silfurskottur þrífast best við 25–30°C og 75–97% raka. Skotturnar eru sérlega skæðar í dimmum og rökum geymslum. Skaðar: pappír, textíl, málverk
Húsflugur vaxa hægt í köldu umhverfi, en 25-35oC er sá hiti sem þær þrífast best við. Lirfurnar lifa á margs konar úrgangi en fullorðnu flugurnar á sykri og fljótandi fæðu
Skaðar: pappír, málverk
Ryklýs geta verið hvimleiðar nái þær miklum fjölda. Tilvist þeirra bendir til þess að raki og mygla séu til staðar.
Skaðar: pappír, textíl
- ↑ Fyrir nákvæmari upplýsingar er vísað í Handbók um varðveislu safnkosts II (2018), Kafli IV: Lífrænir skaðvaldar, bls. 155-194.